Frost ungbarnasamfestingur
Fallegur og mjúkur samfestingur á allra minnstu börnin, útlitið er það sama og í Frost línunni minni sem hefur verið svo ótrúlega vinsæl.
Samfestingurinn er prjónaður fram og til baka, ofan frá og niður, listarnir eru prjónaðir jafnóðum og það eru stuttar umferðir á bakstykki til að gera pláss fyrir bleyjubossa. Fyrirmyndin er Frost samfestingur úr minni allra vinsælustu línu með örlitlum breytingum eins og á kraganum og prjónafestunni.
Uppgefið garn er meðhöndlað á umhverfisvænan hátt sem skaðar ekki umhverfið en ullin er dásamlega mjúk og hentar vel í ungbarnaflíkur.
Athugið að garnmagn og mál miðast við uppgefið garn.
Stærð: 0 mánaða, 1 til 3ja mánaða, 3 til 6 mánaða
Ummál í cm: 42, 47, 50
Tillögur að garni: Kremke merry merino, 140 . Fæst hjá versluninni Rendur og í netverslun www.rendur.is
Magn í gr: 150, 200, 250 ( í prufuprjóni fóru tæplega 200 í stærstu stærð)
Prjónafesta: 23/10 á prjóna nr. 4
Athugið að uppskrift af húfu, sokkum og vettlingum fylgja ekki
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .