Skilmálar

Almennt: 
Amma Loppa áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta auglýstu verði eða hætta að bjóða upp á vörur fyrirvaralaust. 

Uppskriftir eru eingöngu til einkanota kaupanda, öll dreifing og fjölföldun er óheimil, einnig er óheimilt að selja uppskrift til þriðja aðila.

Afhending vöru: 
Uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar staðfesting á greiðslu hefur borist

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur: 
Skilaréttur á ekki við um rafrænar uppskriftir. Við hvetjum við kaupendur til að hafa samband og við munum gera allt til að leita lausna.

Verð: 
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld: 
Öll verð í netversluninni eru með 11% VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Persónuupplýsingar og trúnaður: 
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði er varðar allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar óviðkomandi undir neinum kringumstæðum. En gætu hinsvegar verið notaðar af forritum tengdum vefsíðunni.

Allar greiðslur fara fram í öruggri greiðslugátt Valitor.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.