Fræ peysa
Peysan í Fræ ungbarnalínu, eins og rest af línunni: Einföld og fljótleg og með möguleikum á að gera pífu eða beisikk, bara eins og þú vilt . Málin í uppskriftinni eru reiknuð út frá prjónafestu, sem er gefin upp á garninu
Stærð: 0 til 3 mán, 3 til 6 mán, 6 til 9 mán, 9 til 12 mán, 12 til 18 mán.
Ummál í cm: 50, 53, 55, 56, 58
Tillögur að garni: Dala Lille lerki eða annað sambærilegt garn.
Magn í gr: 150, 150, 200, 200, 250
Prjónafesta: 26/10 á prjóna nr. 3
Athugið að húfan fylgir ekki með.
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið staðfest.