Frost buxur

  • 1.050 ISK kr
VSK innifalin í verði


Súpergóðar buxur fyrir allar meiriháttar athafnir. Hlýjar og góðar undir pollagallann, í útileguna eða bara að horfa á barnaefni. Auðvitað ómissandi við Frost peysuna.

Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður, með stuttum umferðum og bandi í mittið, Strengurinn er saumaður eða prjónaður niður

Málin í uppskriftinni eru reiknuð út frá prjónafestu, sem er gefin upp á garninu. Það er hvernig þú kæri prjónari vinnur með garnið. Einnig mæli ég með að þú takir ummál á barninu og ákveðir svo stærð til að prjóna.

Prjónafestan er reiknuð út frá prjónafestu á uppgefnu garni.

Stærð:                    1, 2, 3, 4 , 5 til 6 ára, 6 til 8 ára

Ummál í cm:          52, 56, 58,  62, 64, 69

Tillögur að garni:    Peruvian ull frá Filcolana, Fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun       www.garnigangi.is

Magn í gr:              150, 150, 200, 200, 250 

Prjónafesta:           18/10 á prjóna nr. 5

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með