Fræ samfestingur

  • 1.350 ISK kr
VSK innifalin í verði


Fræ er einfaldur og fljótlegur en með möguleika á mismunandi útgáfu ef maður er í stuði. Samfestingurinn er prjónaður ofan frá og niður, fram og til baka og listar gerðir jafnóðum sem gerir allt miklu einfaldara. Frekar einfaldur í vinnslu og ég gerði möguleika á að setja pífu til punts en það var bara af því að mér finnst svo gaman að gera pífur 😉

Athugið að húfan fylgir ekki með!

 

Stærð:                    0 til 3 mán, 3 til 6 mán, 6 til 9 mán, 9 til 12 mán, 12 til 18 mán.

Ummál í cm:          50, 53, 55, 56, 58  

Tillögur að garni:    Dala Lille lerki eða annað sambærilegt garn.

Magn í gr:              200, 200, 250, 250, 300

Prjónafesta:           26/10 á prjóna nr. 3

Uppskriftin berst þér á rafrænu formi þegar greiðslan hefur verið staðfest. Ef þú velur að millifæra koma greiðsluupplýsingar í ferlinu.


Við mælum með