Stormur

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Falleg, hlý og svolítið gróf jakkapeysa með litlum köðlum meðfram boðung og ofan á ermum. 

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka, það er aukið út í laska og peysan er prjónuð með garðaprjóni. Kaðallinn er staðsettur við listana að framan og ofan á ermum. Listarnir eru prjónaðir jafnóðum sem gerir hana auðvelda og fljótlega.

Athugaðu að mál eru reiknuð út frá prjónafestu á uppgefnu garni. Ef þú notar annað garn gætu málin orðið önnur. Málin eru miðuð við tilbúna peysu, svo endilega taktu mál á barninu áður en þú ákveður stærð til að prjóna. Gert er ráð fyrir sirka 5 cm aukavídd 😊

Stærð:                    6 til 12 mánaða, 1 , 2, 3, 4, 5, 6 ára

Ummál í cm:          59, 61, 63, 65, 69, 71, 75

Tillögur að garni:    Peruvian frá Filcolana,  fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun  www.garnigangi.is

Magn í gr:              200, 200, 250, 250, 300,300, 350

Prjónafesta:           20/10 á prjóna nr. 4.5

 

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með