Karenarkjóllinn
Kjóllinn er prjónaður ofan frá og niður með púff-ermum og i-cord affellingu á pilsi og ermum. Hann er einfaldur, fljótlegur og hentar vel fyrir byrjendur. Málin í þessari uppskrift eru reiknuð út frá prjónafestu sem gefin er upp á garninu. Mæli einnig með að taka mál af verðandi eiganda kjólsins.
Stærðir: 0-6 mánaða, 6-12 mánaða, 1, 2, 3, 4, 5, 6 ára.
Ummál í cm: 47, 49, 51, 55, 57, 60, 64, 67
Tillögur að garni: Dale Lille lerke eða annað sambærilegt garn.
Magn í gr: 200, 250, 250, 300, 350, 400, 400, 450.
Prjónafesta: 26/10 á prjón nr. 3.
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .