Aðalvík Ungbarnapeysa

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Sæt útgáfa af duggarapeysu á þessi litlu. Peysan er lítil útgáfa af Aðalvík sem er svo geggjuð á stóra bróður/systur

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningu í laska og mismunandi munsturbekkjum sem samanstanda af sléttum og brugðnum lykkjum. Fyrirmyndin er þessi hefðbundna „duggarapeysa“ eða gansey sweater sem eru peysur notaðar af breskum sjómönnum. Peysan er ekki erfið í vinnslu og ætti því að henta þeim sem eru að byrja að prjóna og geta lesið úr munsturmynd. Svo er alveg ferlega gaman að prjóna hana þar sem þú ert aldrei að gera eins munstur 😊

Garnið sem ég gef upp er nýtt garn á markaðnum og er algjör dásemd. Það er non superwash merinoull sem er meðhöndluð á umhverfisvænan hátt.

Ef þú ákveður að nota annað garn, gæti munstur komið öðruvísi út, málin orðið önnur eða magnið sem þú þarft orðið annað.

Stærð: 0 mán, 1 til 3 mán, 3 til 6 mán, 6 til 9 mán, 9 til 12 mán     

 

Ummál í cm: 45, 49, 52, 55, 58            

Tillögur að garni:    Dala soft merino, fæst í netverslun www.prjonaklubburinn.is

Magn í gr: 100, 100, 150, 150, 200  

Prjónafesta:           28/10 á prjóna nr. 3

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með