Auðný, barnapeysa

  • 1,200 ISK kr
VSK innifalin í verði


Einföld krakkapeysa með fallegum laska. Peysan er prjónuð ofan frá og niður með stuttum umferðum. Hún er frekar víð og þú passar að taka stærð sem hentar ummáli á því barni sem þú ert að prjóna handa. Ummál barns undir höndum plús 10 til 15 cm. Ég notaði einn þráð af merino garni ásamt 1 þræði af alpakka lace í öðrum lit sem gerði skemmtilega hreyfinu í peysuna. Þú getur gert það og notað alpakka eða mohair þráð með merino eða notað einn þráð af ullargarninu Kelbourne scout.

Garn í bleiku peysunni: Kremke merry merino 220 litur 11 og pascuali alpaca lace , litur 21

Uppgefið garn fæst í versluninni Rendur á Sauðárkrók eða netverslun www.rendur.is

Stærð:                    1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8 til 10, 10 til 12 ára.

Ummál í cm:          68, 70, 72, 76, 78, 80, 84, 90, 94

Tillögur að garni:    Merry merino 220 eða pascuali baby merino , ásamt fylgiþræði, passar að taka jafnmarga metra og er í uppgefnu garni, Mohair bliss eða alpaca lace. Kelbourn scout án fylgiþráðs.

Magn í gr:              150, 150, 150, 200, 200, 200,250, 250, 300 af 220 og baby merino ásamt jafnmörgum metrum af fylgiþræði. Scout: 200, 200, 200, 200, 300, 300, 300, 300, 400 gr. Garnið er í 100 gramma hespum

Prjónafesta:           20/10 á prjóna nr. 4

 

Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka

Reikningsupplýsingar : 0123  - 26 - 201091  og Kennitala:  010865 - 3369

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugið þar

 

 


Við mælum með