Frost buxur
Súpergóðar buxur fyrir allar meiriháttar athafnir. Hlýjar og góðar undir pollagallann, í útileguna eða bara að horfa á barnaefni. Auðvitað ómissandi við Frost peysuna.
Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður, með stuttum umferðum og bandi í mittið, Strengurinn er saumaður eða prjónaður niður
Málin í uppskriftinni eru reiknuð út frá prjónafestu, sem er gefin upp á garninu. Það er hvernig þú kæri prjónari vinnur með garnið. Einnig mæli ég með að þú takir ummál á barninu og ákveðir svo stærð til að prjóna.
Prjónafestan er reiknuð út frá prjónafestu á uppgefnu garni.
Stærð: 1, 2, 3, 4 , 5 til 6 ára, 6 til 8 ára
Ummál í cm: 52, 56, 58, 62, 64, 69
Tillögur að garni: Peruvian ull frá Filcolana, Fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun www.garnigangi.is
Magn í gr: 150, 150, 200, 200, 250
Prjónafesta: 18/10 á prjóna nr. 5
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .