Heiðský
Hliðarhnepptar ungbarnapeysur eru eitthvað svona vintage og smart. Ég man eftir svona peysum á yngri systrum mínum , ofur krúttlegt og þægilegar.
Peysan er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður, það er aukið út með laska útaukningu og framstykkin koma skáhallt niður á bolinn. Peysan er bundinn í hliðinni en hneppt að innanverðu. Það er gatamunstur neðst á bolnum sem má að sjálfsögðu sleppa ef þannig ber undir eða ef þú vilt ekki hafa það með.
Stærð: 1, 3, 6, 9 og 12 mánaða
Ummál í cm: 47, 49, 51, 56, 61
Tillögur að garni: Kremke merry merino 220
Magn: 100, 150, 150, 200, 200
Prjónafesta: 28/10 á prjóna nr. 3
Þú þarft að nota hringprjón og sokkaprjóna nr. 2,5 og 3, 2 litlar tölu í hliðina, prjónamerki og nál til frágangs.
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .
ATH húfa fygir ekki.