Malena

  • 1.050 ISK kr
Tax Included.


Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með útaukningum við laska. Listarnir eru prjónaðir jafnóðum og með minni prjónum til að fá þá fallegri. Ekki nauðsynlegt samt 😉

Athugið að mál á flík og magn á garni miðast við uppgefið garn.

 Stærð:                    3 til 6 mánaða, 6 til 12 mánaða, 1, 2, 3 ára

Ummál í cm:          52, 54, 59, 61, 65

Tillögur að garni:    LANG merino 120, fæst hjá Garn í gangi eða netverslun www.garnigangi.is

Magn í gr:              150, 150, 200, 250, 250

Prjónafesta:           22/10 á prjóna nr. 4

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .