POPPY - Peysan hennar Lilju

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Ég og Lilja Karen ömmustelpa áttum okkar uppáhaldsmynd sem var Trolls, þegar hún var yngri. Núna horfi ég bara á hana ein og þegar ég kem í heimsókn til Lilju þá segir hún: Amma langar þig að horfa á Poppy?

Poppy er lítil, syngjandi og síglöð tröllastelpa rétt eins og Lilja sjálf en afmælisdagurinn hennar Lilju er 20 febrúar og gaman að gefa þessa peysu út á 6 ára afmælinu.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningu í laska. Hún er víð og þægileg úr garni sem er „blásið“ eða gert þannig að það sé létt og því frábært í svona víða peysu.

Peysan getur verið einlit með sprengdu garni eða með röndum að eigin vali og gaman að láta hugmyndaflugið ráða

Uppskriftin er skrifuð með það í huga að byrjendur eða þeir sem vilja læra að prjóna ofan frá og niður geti farið eftir leiðbeiningum.

Stærð:                    1, 2, 3, 4, 5, 6, 8, 10 ára

Ummál í cm:          66, 69, 74, 79, 84, 89, 91, 96

Tillögur að garni:     Brisa frá BC yarn, fæst hjá Rendur eða í netverslun www.rendur.is

Magn í gr:              200, 200, 250, 300, 350, 350, 400, 400 í einlita peysu

Prjónafesta:           16/10 á prjóna nr. 6

 

Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka

Reikningsupplýsingar : 0123  - 26 - 201091  og Kennitala:  010865 - 3369

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .

 


Við mælum með