Regn, buxur

  • 1.050 ISK kr
VSK innifalin í verði


Súperkrúttlegar buxur sem eru frábær viðbót í leikskólatöskuna. Góðar undir útigallann og pollagallann. Henta vel í útilegu og á köldum dögum yfir veturinn. Bönd eða teygja, þú velur þína útgáfu !

Buxurnar eru prjónaðar neðan frá. Byrjar á skálmum og setur þær síðan saman í klofinu. Það eru stuttar umferðir við strenginn og þú velur sjálf hvort þú vilt hafa axlarbönd eða lokaðan streng með teygju. Böndin eru staðsett við miðju að framan og aftan og halda vel við buxurnar. Ég nota pernilla frá Filcolana sem er 100% ullargarn og passar svo vel í barnaflíkur, ekki of þykkt og er fullkomið í leikskólafatnaðinn.

Prjónafestan á þessu garni er 22/10 á prjóna númer 4. Ég reikna ummálin á flíkinni og miða við uppgefið garn, munstrið tekur til sín og prjónafestan fer í um það bil 24/10 svo þið passið upp á þetta ef þið viljið nota annað garn.

Stærð:                    6 til 12 mánaða, 1, 2, 3, 4 ára.

Ummál í cm:          56, 58, 60, 62, 64  

Tillögur að garni:    Pernilla frá Filcolana,  fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun  www.garnigangi.is

Magn í gr:              100, 100, 150, 150, 150

Prjónafesta:           23 til 24/10 á prjóna nr. 4

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með