Stormur
Falleg, hlý og svolítið gróf jakkapeysa með litlum köðlum meðfram boðung og ofan á ermum.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka, það er aukið út í laska og peysan er prjónuð með garðaprjóni. Kaðallinn er staðsettur við listana að framan og ofan á ermum. Listarnir eru prjónaðir jafnóðum sem gerir hana auðvelda og fljótlega.
Athugaðu að mál eru reiknuð út frá prjónafestu á uppgefnu garni. Ef þú notar annað garn gætu málin orðið önnur. Málin eru miðuð við tilbúna peysu, svo endilega taktu mál á barninu áður en þú ákveður stærð til að prjóna. Gert er ráð fyrir sirka 5 cm aukavídd 😊
Stærð: 6 til 12 mánaða, 1 , 2, 3, 4, 5, 6 ára
Ummál í cm: 59, 61, 63, 65, 69, 71, 75
Tillögur að garni: Peruvian frá Filcolana, fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun www.garnigangi.is
Magn í gr: 200, 200, 250, 250, 300,300, 350
Prjónafesta: 20/10 á prjóna nr. 4.5
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .