Stuðlar húfa

  • 750 ISK kr
VSK innifalin í verði


ATH. Þetta er eingöngu uppskrift af  Stuðlar húfu.

Þó þessi húfa heiti Stuðlar og gerð í takt við Stuðlar peysu og buxur þá er hún bara æði ein og sér. Krúttleg með dúsk og geggjuð á eldri krakkana með uppábroti.

Húfan er prjónuð með sléttum og brugðnum lykkjum, hún er þétt og góð og einnig teygjanleg. Útskýring á eyrum gera þér kleif að setja eyru á allar stærðir eða enga 😊 þitt er valið.

Þessi uppskrift bíður upp á að vera prjónuð hvar sem er, í bílnum, búðinni, bíó, á læknastofunni, kirkjunni eða bara alls staðar .

Ég nota KIND merinoull í þessa uppskrift.

KIND merinoull er non SW garn, mjúkt og dásamlegt í barnaflíkur.

Stærð:                    6 til 12 mánaða, 1 til 2ja ára, 2 til 4 ára, 5 ára

Ummál í cm:          27, 30, 32, 34

Tillögur að garni:    KIND merinoull, fæst hjá  https://prjonaklubburinn.is/

Magn í gr:              50, 50, 50, 80 ATHí minni stærðir geri ég ráð fyrir eyrum en ekki uppábroti

Prjónafesta:           23/10 á prjóna nr. 3.5

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með