Teppið hennar Hildar
Þetta teppi prjónaði ég þegar Hildur Ösp dóttir mín átti von á litlu stelpunni sinni. Munstrið er ekki ólíkt munstrinu í Ösp húfunni, sem er fyrsta húfan sem ég bjó til uppskrift af. Litla ljósið kom í heiminn 20 Febrúar 2020 og er sjöunda barnabarnið mitt. Hún er systir hans Smára Geirs.
Stærð: Sirka 60 x 80 sentimetrar
Tillögur að garni: Sandnes merinoull, litur á teppi á mynd, er númer 4042
Magn í gr: 300 eða 6 dokkur af uppgefnu garni
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .