Bergvík barnapeysa

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Bergvík KE 22 var skuttogari í eigu Hraðfrystihúss Keflavíkur.  Annar af tveimur en hinn var Aðalvík KE 95

Það var því alltaf á planinu hjá mér að gera Bergvík í þessu sívinsæla duggara útliti.

Hver þarf ekki tvær duggara peysur !

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með þremur mismunandi munsturbekkjum sem eru prjónaðir til skiptis í peysunni. Munsturbekkir samanstanda af sléttum og brugðnum lykkjum svo það ætti að vera á flestra færi að prjóna þessa fallegu peysu.

Stærð:                    1, 2, 3, 4, 5, 6 til 8 ára, 8 til 10 ára

Ummál í cm:          56, 60, 64, 72, 78, 84, 90

Tillögur að garni:    Kelbourne scout, annar möguleiki: Kremke merry merino 110

Magn í gr:              200, 200, 300, 300, 350, 400, 400 , miðað við Scout, þú þarft  meira í Kremke merino

Prjónafesta:           20/10 á prjóna nr. 4,5

 

Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka

Reikningsupplýsingar : 0123  - 26 - 201091  og Kennitala:  010865 - 3369

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .

 


Við mælum með