Birta húfa og kragi

  • 950 ISK kr
VSK innifalin í verði


Birta bíddu eftir mér!  söng einhver hér um árið.

Þetta munstur hef ég notað töluvert síðan ég byrjaði að gera uppskriftir og núna seinast í teppinu hennar Hildar. Húfan er voða sæt og passar fínt á litla gorma og kraginn, hann bara fylgir með.

Málin í uppskriftinni eru reiknuð út frá prjónafestu, sem er gefin upp á garninu. Það er hvernig þú kæri prjónari vinnur með garnið. Einnig mæli ég með að þú takir ummál á barninu og ákveðir svo stærð til að prjóna.

Stærð:                    1 til 6 mán, 6 til 12 mán, 1 til 2ja ára. 2 til 4 ára, 6 til 10 ára.

Ummál í cm:          35, 38, 42, 45, 46    

Tillögur að garni:    Sandnes, Merinoull, Smart ,Duo eða annað sem hentar fyrir þessa prjónafestu

Magn í gr:              150, 150, 200, 200, 200 í settið.

Prjónafesta:           22/10 á prjóna nr. 3,5

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með