Jólahúfa Ömmu Loppu 2021

  • 750 ISK kr
VSK innifalin í verði


Þá er komið að því að halda þessi yndislegu jól, hátíð barnanna . Auðvitað er það orðin liður í jólaundirbúningnum hjá mér að gera fína jólahúfu handa ykkur, til að prjóna á mikilvægasta fólkið í lífinu.

Húfan er prjónuð í hring, með fallegu munstri fyrir ofan kantinn. Hún er nokkuð löng, þ.e. langt á milli þess sem er tekið úr og auðvelt að breyta því ef hugurinn stendur þannig 😉

Eins er líka gaman að sjá jólahúfur í öllum regnbogans litum og ég ákvað að hafa eina bleika hjá mér. Algjör krútthúfa, vá hvað ég er spennt að sjá þína útgáfu.

Stærð:                    6 til 18 mán, 2 til 4 ára, 4 til 6 ára, 6 til 10 ára.

Ummál í cm:          43, 45, 50, 55

Tillögur að garni:    Pernilla frá Filcolana, fæst hjá Garn í gangi og í vefverslun www.garnigangi.is

Magn í gr:              100 gr af aðallit í allar stærðir, 50 gr af munsturlit. Húfan er frá 60 til 80 gr.

Prjónafesta:           22/10 á prjóna nr. 4

Einnig er hægt að sjá meira af því sem ég er að gera á Facebook síðunni minni: https://www.facebook.com/ammaloppa/  eða á Instagram https://www.instagram.com/amma_loppa/

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að pöntun er staðfest. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með