Regn peysa

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Ein fljótleg og þægileg á leikskólann, eða skólann.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með sléttum og brugðnum lykkjum í fjórðu hverri umferð  sem mynda svona skemmtilegt munstur. Frekar auðveld í vinnslu og mundi án efa henta byrjendum. Peysan er frekar víð og er gert ráð fyrir því í uppskriftinni.

Athugið að mál miðast við prjónafestu á uppgefnu garni og í þessari uppskrift er gert ráð fyrir allt að 8 cm aukavídd . Ef þú notar annað garn gætu mál orðið önnur.

Stærð:                    6 til 12 mán, 1, 2, 3, 4, 5, 6 ára  

Ummál í cm:          58, 62, 68, 71, 75, 77, 79 

Tillögur að garni:    Peruvian ull frá Filcolana.  Garnið fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun  www.garnigangi.is

Magn í gr:              200, 200, 250, 250, 300, 300, 350

Prjónafesta:           18/10 á prjóna nr. 5

Ath að uppskrift af húfum fylgir ekki.

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .

 

 


Við mælum með