Sigluvík , barnapeysa

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Falleg og hentug peysa á alla krakka. Hlý og góð í leikskólann og út að kaupa ís með ömmu.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningum í berustykkinu. Munstrið er hefðbundið og nokkuð vinsælt og er samansett af sléttum og brugðnum lykkjum, eitthvað sem allir kunna. Þessi mundi klárlega henta þeim sem eru óvanir eða að byrja að prjóna því hvorki munstur né útaukningar eru flóknar.

 Alla merinoull ber að þvo varlega og sérstaklega peysur sem eru prjónaðar slétt og brugðið. Merinoullin gefur eftir og þú skalt gera ráð fyrir að flíkin stækki aðeins. 

Stærð:                    1, 2, 3, 4, 5 , 6 ára

Ummál í cm:          58, 63, 65, 68, 72, 78   

Tillögur að garni:    Hey Mama wolf, mokosh 100 gr og 300 metrar á hespu fæst hjá  Garnið fæst hjá Versluninni Rendur á Sauðárkrók eða www.rendur.is

Magn í gr:              150, 150, 200, 200, 300, 300.

Prjónafesta:           23/10 á prjóna nr. 3.5 

Þú þarft að nota hringprjón og sokkaprjóna nr. 3,  og 4, prjónamerki og nál til frágangs. 

Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka

Reikningsupplýsingar : 0123  - 26 - 201091  og Kennitala:  010865 - 3369

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .

 


Við mælum með