Stuðlar, sett
ATH. Þessi uppskrif inniheldur allt settið. Peysu, buxur, húfu og kraga.
Hér erum við að tala um allt Stuðlar settið :)
PEYSA
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningum við laska. Munstrið á berustykki og ermum er auðvelt slétt og brugðið munstur. Peysan er frekar auðveld að prjóna og flækjustigið ekki mikið, svo óvanir ættu að geta reynt sig við þessa.
Stærð: 6 til 12 mánaða, 1, 2, 3, 4, 5 ára.
Ummál í cm: 52, 55, 58, 63, 65, 67
Magn í gr: 150, 200, 250, 250, 300, 300 ( fer smá eftir sídd)
Prjónafesta: 23 til 24/10 á prjóna nr. 3.5
BUXUR
Buxurnar eru prjónaðar neðan frá, skálmarnar fyrst og síðan settar saman í klofinu. Þær eru háar í mittið og með stuttum umferðum á bossanum. Munstrið í buxunum gerir þær teygjanlegar og gott að gera skálmarnar aðeins lengri, bretta upp og nota síðan lengur.
Stærð: 6 til 12 mánaða, 1 árs, 2 til 4 ára, 5 ára
Ummál í cm: 47, 50, 57, 60
Magn í gr: 150, 150 200 til 250 ( eftir aldri) 300
Prjónafesta: 23 til 24/10 á prjóna nr. 4
HÚFA
Húfan er prjónuð með sléttum og brugðnum lykkjum, hún er þétt og góð og einnig teygjanleg. Útskýring á eyrum gera þér kleif að setja eyru á allar stærðir eða enga 😊 þitt er valið.
Þessi uppskrift bíður upp á að vera prjónuð hvar sem er, í bílnum, búðinni, bíó, á læknastofunni, kirkjunni eða bara alls staðar .
Stærð: 6 til 12 mánaða, 1 til 2ja ára, 2 til 4 ára, 5 ára
Ummál í cm: 27, 30, 32, 34
Magn í gr: 50, 50, 50, 80 ATH. í minni stærðir geri ég ráð fyrir eyrum en ekki uppábroti
Prjónafesta: 23/10 á prjóna nr. 3.5
KRAGI
Kraginn er prjónaður ofan frá og niður með útaukningu á axlarstykki og fallegum I cord kanti í hliðum. Hann skiptist síðan í tvö stykki sem eru prjónuð fram og til baka.
Stærð: 6 mánaða til 2ja ára, 3 til 5 ára
Magn í gr: 50 gr í báðar stærðir
Prjónafesta: 22/10 á prjóna nr. 4
Garn: Kind merinoull frá prjónaklúbbnum eða Kremke merry merino 140 frá Rendur.is
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .