Chunky barnavesti
Vestið er prjónað neðan frá og upp með úrtöku í ermagati og hálsmáli. Vestið er einfalt, fljótlegt og hentar vel fyrir byrjendur sem og lengra komna. Málin í þessari uppskrift eru reiknuð út frá prjónafestu sem gefin er upp á garninu. Mæli einnig með að taka mál af verðandi eiganda vestisins.
Stærðir: 1-2 ára, 2-4 ára, 4-6 ára, 6-8 ára, 8-10 ára, 10-12 ára
Ummál í cm: 56, 66, 70, 75, 80, 85
Tillögur að garni: Sandnes Kos eða sambærilegt garn með sömu prjónafestu.
Magn í gr: 100, 100, 100, 150, 150, 200.
Prjónafesta: 17/10 á prjón nr. 5.
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .