Mía Bolur

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Vinsamlega athugið að bolurinn er ennþá í prufuprjóni svo það gæti orðið uppfærsla ef þarf :)

Ég elska Míu línuna mína og eitt að því sem einkennir hana er þessi laski sem er svo fallegur. Ég hef svo oft verið beðin um fullorðins Míu.

 

Bolurinn er prjónaður ofan frá og niður með gataröð í hálsmálið sem mótast fallega og er smá flegið. Laskinn er gatamunstur sem er skemmtilegt og auðvelt að vinna með og gefur fallegan svip á bolinn sem annars er frekar plain og passar við allt í fataskápnum. Ermarnar eru stuttar en ekki of stuttar og lítið mál að gera þær lengri ef viðkomandi vill. Kvart væri til dæmis smart líka 😉

Garnið sem ég gef upp er bómullargarn með 10% Kasmír. Bolurinn er léttur og ekki of heitur. Bómullinn þéttist í þvotti en að sama skapi gefur eftir við notkun . Ég gef ekki mikla umframvídd í stærðum ( ca 4 til 6 cm)  en ef þú vilt víðari flík þá er lítið mál að prjóna stærri stærð. Ég sjálf tók M stærð á mig en er með ummálið 97 til 98 yfir brjóst. Er ótrúlega ánægð með hann.

Stærð:                    S, M, L, XL, 2XL, 3XL, 4XL

Ummál í cm:           88, 93, 98, 106, 118, 123, 134  

Tillögur að garni:    Summer in kashmir frá BC Garn

Magn í gr:              200, 250, 300, 300, 350, 400, 450 ( áætlað)

Prjónafesta:           24/10 á prjóna nr. 3.5

Þú þarft að nota hringprjóna númer 2,5 og 3,5 prjónamerki og nál til frágangs.

Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka

Reikningsupplýsingar : 0123  - 26 - 201091  og Kennitala:  010865 - 3369

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugið þar

 


Við mælum með