Dís
Dís er prjónuð ofan frá og niður og með laska. Ermar eru prjónaðar með sléttu prjóni, garðaprjón í fram og bakstykki og munstur í bolnum. Þessi peysa hentar vel fyrir þá sem eru óvanir eða að byrja að prjóna, því flækjustigið er ekkert.
Stærð: 0 – 6 mánaða, 6-12 mánaða, 1, 2 , 3, 4, 5, 6 - 8 ára
Ummál í cm: 56, 58, 60, 61, 64, 66, 68, 72
Tillögur að garni: Sandnes merinoull eða annað sambærilegt garn.
Magn í gr: 200, 200, 250, 250 250, 300, 300 ,350
Prjónafesta: 22/10 á prjóna nr. 3.5
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .