Jólahúfa Ömmu Loppu 2021
Þá er komið að því að halda þessi yndislegu jól, hátíð barnanna . Auðvitað er það orðin liður í jólaundirbúningnum hjá mér að gera fína jólahúfu handa ykkur, til að prjóna á mikilvægasta fólkið í lífinu.
Húfan er prjónuð í hring, með fallegu munstri fyrir ofan kantinn. Hún er nokkuð löng, þ.e. langt á milli þess sem er tekið úr og auðvelt að breyta því ef hugurinn stendur þannig 😉
Eins er líka gaman að sjá jólahúfur í öllum regnbogans litum og ég ákvað að hafa eina bleika hjá mér. Algjör krútthúfa, vá hvað ég er spennt að sjá þína útgáfu.
Stærð: 6 til 18 mán, 2 til 4 ára, 4 til 6 ára, 6 til 10 ára.
Ummál í cm: 43, 45, 50, 55
Tillögur að garni: Pernilla frá Filcolana, fæst hjá Garn í gangi og í vefverslun www.garnigangi.is
Magn í gr: 100 gr af aðallit í allar stærðir, 50 gr af munsturlit. Húfan er frá 60 til 80 gr.
Prjónafesta: 22/10 á prjóna nr. 4
Einnig er hægt að sjá meira af því sem ég er að gera á Facebook síðunni minni: https://www.facebook.com/ammaloppa/ eða á Instagram https://www.instagram.com/amma_loppa/
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að pöntun er staðfest. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .