Dís, húfa
Dís er ein af vinsælustu peysunum hjá mér. Enda ótrúlega flott. Ég hef oft verið beðin um húfu í stíl eða með munstrinu í peysunni svo auðvitað verð ég við þeirri beiðni.
Mega sæt húfa með kassalagi og tveimur dúskum. Ég læt líka fylgja úrtöku í kollinn svo hægt sé að gera tvær útgáfur af Dís húfu. Eins og flestar mínar húfur er snúran gerð fyrst og síðan eyrun og kanturinn í framhaldi, svo ótrúlega þægileg aðferð þó það séu fleiri endar til að ganga frá. Ég geri ekki ráð fyrir eyrum á 3 -5 ára
Málin í uppskriftinni eru reiknuð út frá prjónafestu, sem er gefin upp á garninu. .
Stærð: 1 til 3 mán, 3 til 6 mánaða, 6 til 12 mánaða, 1 til 2 ja ára. 3 til 5 ára
Ummál í cm: 35, 38, 40, 45, 50
Tillögur að garni: Sandnes merinoull eða sambærilegt garn
Magn í gr: 100 gr í allar stærðir
Prjónafesta: 22/10 á prjóna nr. 3,5
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .