Fífa
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með tölum að aftan, prjónuð fram og til baka en sett saman eftir nokkrar umferðir. Kraginn er tekin upp af lykkjunum í hálsmálinu. Frekar einföld og gæti hentað óvönum
Stærð: 6-12 mánaða, 1, 2, 3, 4, 5 ára
Ummál í cm: 53, 55, 56, 60, 62, 64
Tillögur að garni: Sandnes merinoull eða sambærilegt garn
Magn í gr: 200, 250, 300, 350, 350 ,400
Prjónafesta: 22/10 á prjóna nr. 3,5
Uppskrifin er send á rafrænu formi þegar greiðsla hefur verið staðfest.