Fræ samfestingur
Fræ er einfaldur og fljótlegur en með möguleika á mismunandi útgáfu ef maður er í stuði. Samfestingurinn er prjónaður ofan frá og niður, fram og til baka og listar gerðir jafnóðum sem gerir allt miklu einfaldara. Frekar einfaldur í vinnslu og ég gerði möguleika á að setja pífu til punts en það var bara af því að mér finnst svo gaman að gera pífur 😉
Athugið að húfan fylgir ekki með!
Stærð: 0 til 3 mán, 3 til 6 mán, 6 til 9 mán, 9 til 12 mán, 12 til 18 mán.
Ummál í cm: 50, 53, 55, 56, 58
Tillögur að garni: Dala Lille lerki eða annað sambærilegt garn.
Magn í gr: 200, 200, 250, 250, 300
Prjónafesta: 26/10 á prjóna nr. 3
Uppskriftin berst þér á rafrænu formi þegar greiðslan hefur verið staðfest. Ef þú velur að millifæra koma greiðsluupplýsingar í ferlinu.