Lauf , ungbarnapeysa
Lauf var upphaflega prjónuð á Lilju Karen ömmustelpu sem partur af heimfarasetti.
Peysan er prjónuð neðan frá og upp, með garðaprjóni og laskaúrtöku. Fallegu laufmunstri á bakinu og við boðungana. Listarnir eru prjónaðir jafnóðum sem gerir hana fljótlega í vinnslu.
Stærð: 0 til 3ja mán. 3 til 6 mán, 6 til 9 mán, 9 til 12 mán, 12 til 18 mán.
Ummál í cm: 46, 47, 50, 51, 55
Tillögur að garni: Merci frá Filcolana, Fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun www.garnigangi.is. Annað garn : Merry merino 220 sem fæst hjá www.rendur.is
Magn í gr: 100, 100, 150, 150, 200 af uppgefnu garni. Ef þú notar annað garn gæti þurft meira!
Prjónafesta: 28/10 á prjóna nr. 3
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .