Óðinn
Einföld töff og fljótleg er eiginlega bara orðið yfir þessa. Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningu í laska. Það eru I-cord kantar á listum og I- cord affelling neðst á peysunni. Ermarnar eru með sléttu prjóni en garðaprjón á bak og framstykki sem gerir peysuna afar fljótlega og einfalda í vinnslu. Þessi uppskrift gæti því einnig hentað vel fyrir óvana.
Stærð: 6-12 mánaða, 1, 2, 3, 4, 5 ára
Ummál í cm: 56, 59, 61, 63, 65, 67
Tillögur að garni: Dala Lerki , 115metrar í 50 gr. Eða sambærilegt garn.
Magn í gr: 200, 200. 250, 250, 300, 300
Prjónafesta: 22/10 á prjóna nr. 4
Uppskriftin berst á rafrænu formi þegar greiðsla hefur verið staðfest