Stjarna
Einhyrningaprumpglimmerpeysa ✨
Með 3 litlar ömmustelpur sem elska bleikt, glimmer og einhyrninga varð að vera ein svona ótrúlega litaglöð peysa.
Dásamleg að öllu leiti, alltaf, alls staðar
Peysan er auðveld í vinnslu. Hún er prjónuð ofan frá og niður með víðum bol og síðum ermum. Upplagt fyrir byrjendur að spreyta sig á þessari.
Stærð: 1, 2, 3, 4, 5, 6 ára.
Ummál í cm: 57, 59, 61, 65, 69, 71
Tillögur að garni: DK delux, sparkle , það er líka hægt að nota DK delux en ath að metrarnir eru fleiri í því garni. Garnið er handlitað hjá Dóttir Dyeworks
Magn í gr: 200, 200, 250, 250, 300, 300 ( fer aðeins eftir sídd á peysu en hespurnar eru seldar í 100 gr)
Prjónafesta: 20/10 á prjóna nr. 4,5
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .