Hraun, barnapeysa

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Ekta hversdags þægileg og víð leikskóla, skólapeysa. Þessi er eins og Hraun fullorðins peysan frá mér, svo mamma og gormur geta verið í stíl við hvort annað. Smart við Hraun leggings á þessi yngri.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með hálfum kraga og ermum í strofflúkki. Spagettí ermar kalla stelpurnar mínar þetta. Það er klauf í stroffinu að neðan sem má sleppa ef það er ekki áhugi á að gera það. Annars er Hraun frekar  einföld og auðveld í vinnslu.

 

Stærð:                    6 til 12 mán, 1 árs, 2 til 3 ja ára, 3 til 4 ára, 4 til 5 ára, 6 til 8 ára, 8 til 10 ára

Ummál í cm:        58, 60, 65, 70, 75, 78, 80    

Tillögur að garni:    Sandnes merinoull, eða sambærilegt garn

Magn í gr:              200, 250, 300, 350, 350, 400, 450 af uppgefnu garni ( fer aðeins eftir sídd líka )

Prjónafesta:           22/10 á prjóna nr. 3.5

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .

Ef þér hentar ekki að greiða með korti þá er að sjálfsögðu hægt að millifæra með því að velja þann möguleika í ferlinu. Mundu bara að senda mér kvittun svo þetta gangi allt hratt og vel fyrir sig.


Við mælum með