Loki

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Bubbluprjónið hefur verið vinsælt í alls konar flíkum, enda krúttlegt og skemmtilegt prjón. Loki er prjónuð ofan frá og niður, listar meðfram boðung eru prjónaðir jafnóðum og það kemur vel út í bubblunum að hafa garðaprjón með svo það er rönd af garðaprjóni í hliðinni líka. Sléttar ermar með smá uppábroti gefa svo stæl.

Stærð:                    6-12 mánaða, 1, 2 , 3, 4, 5, 6 ára.

Tillögur að garni:    Sandnes Merinoull eða sambærilegt garn. Mæli ekki með Alpakka garni eða alpakka blöndu. Munstrið verður einfaldlega ekki eins fallegt.

Magn í gr:              200, 200, 250, 300, 350, 350, 400

Prjónafesta:           22/10 á prjóna nr. 3,5

Uppskriftin berst á rafrænu formi þegar greiðsla hefur verið staðfest.


Við mælum með