Alex, Fullorðinspeysa

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Kósí peysa með sama útlit og Alex barnapeysan. Nú geta mömmur, pabbar, ömmur og afar verið í stíl.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með stuttum umferðum til að móta betur berustykkið. Hálskraginn er tekinn upp og prjónaður einfaldur en fellt af með ítalskri affellingu. Að öðru leiti er peysan einföld í vinnslu og nokkuð fljótprjónuð. Ummálið sem er gefið upp er ummál á peysunni undir höndum og yfir brjóst . Ef þú vilt víðari/þrengri flík þá tekurðu stærri/minni stærð. Garnið sem ég gef upp er 100% ullargarn frá þýska fyrirtækinu Pascuali sem sérhæfir sig í að framleiða gæðagarn á náttúruvænan hátt.

Gott að kunna : stuttar umferðir og ítalska affellingu

Garnið í þessa uppskrift fæst eingöngu hjá Rendur á Sauðárkróki í vefverslun www.rendur.is

Stærð:                    XS, S, M, L, XL, 2XL, 3XL

Ummál í cm:          98, 107, 116, 120, 128, 133, 140

Tillögur að garni:    Sayama frá Pascuali, fylgiþráður í Alpaca lace eða mohair  

Magn í gr:              400, 400, 500, 500, 600, 600, 700 af sayama

Munsturlitur:        100 gr í allar stærðir,  50 gr fylgiþráður ,upplagt að nota afgang ef þú átt, í small peysu fór ég með 25 gr af alpaca og 60 gr af munsturlit

Fylgiþráður             Isager alpaca eða pascuali alpaca lace  50 gr með 400 metrum. 100, 100, 150, 150, 200, 200, 200 ATH ef þú tekur Mohair þá að passa að þú takir jafn marga metra og þarf, því mohair er oftast í 25 gr dokkum

Prjónafesta:           18/10 á prjóna nr. 5

Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka

Reikningsupplýsingar : 0123  - 26 - 201091  og Kennitala:  010865 - 3369

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .

 

 


Við mælum með