Bambi peysa
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, slétt berustykki og ermar en munstur á bol. Munstrið er ein útgáfa af Diamont honycomb og ekki eins erfitt eins og það lítur út fyrir að prjóna það.
Stærð: 1-3 mánaða, 3-6 mánaða, 6-12 mánaða, 1 til 2ja ára
Ummál í cm: 51, 53, 56, 58
Tillögur að garni: Dala Lille lerki, 142 metrar í 50 gr, eða annað sambærilegt garn
Magn í gr: 150, 200, 200, 250
Prjónafesta: 26/10 á prjóna nr. 3
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .