Desember jólahúfa
Auðvitað þarf að vera húfa við þessa dásamlegu Desember peysu. Nema hvað ;)
Bara ósköp venjulega jólahúfa. Stroffið er prjónað saman og munstrið sem er í er í jólapeysunni Desember. Það er hægt að gera tvær mismunandi myndir og einnig hægt að gera mismunandi lengd á skottinu.
Stærð: 6 mán til 2ja ára, 2 til 4 ára, 4 til 6 ára, 8 til 10 ára
Ummál í cm: 45, 48, 50, 52
Tillögur að garni: Kelbourne camper
Magn í gr: 2 dokkur af aðallit , í munstur notaði ég afgang frá peysunum sem ég gerði á krakkana. Ef þú átt það ekki til þarftu að versla 1 dokku af hvorum munsturlit.
Prjónafesta: 27/10 á prjóna nr. 3
ATH . þetta er eingöngu uppskrift af húfu
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .