Drangey - barnapeysa
Með tengingu í Skagafjörðinn, til vinkonu minnar og systra hennar, ákvað ég að þessi peysa fengi nafnið Drangey. Falleg og einföld og passar fullkomlega fyrir allan aldur.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningu við laska. Munstrið í peysunni er frekar einfalt að prjóna og ætti að henta öllum, bæði vönum og óvönum.
Ummál miðast við tilbúna flík og málið tekið undir höndum. Það er alltaf betra að taka viðmið af barni sem fær peysu og taka stærð eftir því . Flíkin er miðuð við ca 15 til 20 umfram vídd.
Stærð: 1, 2, 3, 4, 6, 8 ,10, 12 ára.
Ummál í cm: 64,66, 72, 74, 78, 84, 86, 88
Tillögur að garni: Sayama frá Pascuali, garnið fæst hjá www.rendur.is
Magn í gr aðallitur 150, 150, 200, 200, 250, 250, 300, 350
Magn í gr munsturlitur: 100, 100, 100, 150, 150, 150, 150, 200
Prjónafesta: 20/10 á prjóna nr. 4
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .
ATH. Á mynd af frænkum er stóra frænka í fullorðins Drangey.