Dýrafjör "Þín eigin peysa"
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningum í berustykkinu.Ég gerði 3 útgáfur, af því ég gat ekki ákveðið hvaða mynd var skemmtilegust. Þú getur leikið þér með myndir og útfærslur.
Stærð: 1, 2, 3, 4, 5, 6 ára.
Ummál í cm: 59, 62, 66, 68, 71, 74
Tillögur að garni: Pernilla frá Filcolana, 100% hrein ull. Garnið fæst hjá Garn í gangi og í netverslun https://garnigangi.is/
Magn í gr: Aðallitur: 150, 150, 150, 200, 200, 250, 250 , Munsturlitur 50 gr í allar stærðir. 175metrar í 50 gr
Prjónafesta: 22/10 á prjóna nr. 4
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .