Hraun barnasett
Þetta sett samanstendur af Hraun barnapeysu, buxum og húfu.
Peysan
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með hálfum kraga og ermum í strofflúkki. Spagettí ermar kalla stelpurnar mínar þetta. Það er klauf í stroffinu að neðan sem má sleppa ef það er ekki áhugi á að gera það. Annars er Hraun frekar einföld og auðveld í vinnslu.
Stærð: 6 til 12 mán, 1 árs, 2 til 3 ja ára, 3 til 4 ára, 4 til 5 ára, 6 til 8 ára, 8 til 10 ára
Ummál í cm: 58, 60, 65, 70, 75, 78, 80
Tillögur að garni: Sandnes merinoull, eða sambærilegt garn
Magn í gr: 200, 250, 300, 350, 350, 400, 450 af uppgefnu garni ( fer aðeins eftir sídd líka )
Prjónafesta: 22/10 á prjóna nr. 3.5
Buxurnar:
Athugið að buxurnar eru prjónaðar í svona stroff lúkki, verða smá eins og spagettí. Koma vel út samt sem áður. Ég hafði þær frekar í stærri kantinum svo þær geti verið lengur í notkun. Skálmar eru prjónaðar fyrst og buxurnar settar saman í klofinu. Stuttar umferðir á bakhluta og strengurinn er saumaður niður. Ég notaði teygju í mittið með tölu svo þær passi lengur.
Stærð: 6 til 12 mánaða, 1 árs, 2 til 3 ára, 3 til 4 ára, 4 til 5 ára
Ummál í cm: 50, 55, 60, 65, 70
Tillögur að garni: Sandnes merinoull eða annað sambærilegt garn
Magn í gr: 150, 200, 250, 350, 350 af uppgefnu garni
Prjónafesta: 21 - 22/10 á prjóna nr. 4
Húfan
Húfan er prjónuð með stroffi , þ.e. sléttum og brugðnum lykkjum, sem gefur alltaf eftir. Húfan getur því passað lengi. Mér finnst ekkert must að hafa eyru á þessari húfu og gerði ekki ráð fyrir þeim, en auðvitað er lítið mál að bæta þeim við ef áhugi er á því. Annars er hún svaka flott og passar vel á litla kolla. Amalía ömmukrútt passar fínt í minnstu stærðina, þegar hún var 8 mánaða.
Stærð: 6 mán til 18 mán, 2 til 4 ára, 4 til 6 ára, 6 til 10 ára
Ummál í cm: 30, 35, 40, 45 ( óteygð)
Tillögur að garni: Sandnes merinoull, eða annað sambærilegt garn.
Magn í gr: 2 dokkur í allar stærðir
Prjónafesta: 20/10 á prjóna nr. 4
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .
Ef þér hentar ekki að greiða með korti þá er að sjálfsögðu hægt að millifæra með því að velja þann möguleika í ferlinu. Mundu bara að senda mér kvittun svo þetta gangi allt hratt og vel fyrir sig.