Jökull, ungbarnasett
Mikilvægir fylgihlutir til að halda hita á minnsta fólkinu okkar.
Settið samanstendur af hefðbundinni hjálmhúfu sem er þrátt fyrir garðaprjón, prjónuð í hring og kollurinn saumaður, prjónaður eða lykkjaður saman eftir á.
Sokkar og vettlingar, einnig prjónað með garðaprjóni svo það verði þykkt og hlýtt. Einfalt og fljótlegt að prjóna . Það er ekki gert ráð fyrir þumli á vettlingana.
Ég mæli með mjúku garni í settið eins og uppgefnu garni sem er 100% merinoull. Unnin á þann hátt sem skaðar ekki náttúruna, garnið er mjög mjúkt og hentar því ákaflega vel í ungbarnaföt.
Stærð: Húfan, 0, 1 til 3 mánaða, 3 til 6 mánaða. Sokkar og vettlingar koma í tveimur stærðum. 0 til 2ja mán, 3 til 6 mánaða
Ummál í cm: Sjá í hverjum hluta uppskriftar
Tillögur að garni: Kind merinoull, garnið er flutt inn af Kind knitting og fæst hjá www.prjonaklubburinn.is
Magn í gr: 100, 120
Prjónafesta: 24/10 á prjóna nr. 3.5
Þú þarft að nota lítinn hringprjón í húfu og sokkaprjóna nr. 3.5 í vettlinga og sokka