Lea, sumarbolur

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Fallegur sumarbolur á flotta krakka, fullkomin í íslenska og jafnvel norska sumarið.

Bolurinn er prjónaður ofan frá og niður og útaukningar gerðar við laska. Stuttar ermar og rendur í bolnum sem gera hann svo sumarlegan og sætan. Rendurnar eru ferlega flottar í öðrum lit en eru líka ótrúlega smart í sama lit og bolurinn.

Ég nota Pinta frá Pascuali sem er fallegt og létt garn blanda að fínni merinoull, silki og raime.

Stærð:                    1, 2, 3, 4, 6, 8 og 10 ára.

Ummál í cm:          58, 61, 64, 67, 70, 73, 75

Tillögur að garni:    Pinta frá Pascuali, ekta garn í sumarflíkur. Fæst hjá www.rendur.is

Magn í gr:              100, 100, 100, 150, 150, 150, 200 ( í rendur í öðrum lit, þarf ekki mikið og ein dokka er nóg eða jafnvel afgangur af garni)

Prjónafesta:           26/10 á prjóna nr. 3

Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka

Reikningsupplýsingar : 0123  - 26 - 201091  og Kennitala:  010865 - 3369

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með