Líf samfestingur
Samfestingar eru svo þægilegir og góðir fyrir þessu litlu. Prjónaður úr Dale Lille lerki er hann hlýr og góður í vagninn og bílstólinn fyrstu mánuðina. Líf er prjónaður ofan frá og niður, fram og til baka með skemmtilegri útaukningu í berustykkinu og fallega eylet munstrinu sem ég hef notað í Líf línuna mína. Að prjóna svona heilgalla er vinna en skemmtileg vinna og lærdómsrík. Ekki er verra, ef þú ert óörugg í að prjóna, að hafa eina reynda á kantinum.
Stærð: Nýfætt , 1– 3 mán, 3 – 6 mán, 6 – 12 mán og 12 – 18 mán
Ummál í cm: 45, 50 , 52, 56, 60
Tillögur að garni: Dala Lille lerki eða sambærilegt garn
Magn í gr: 150, 200, 200, 250, 300
Prjónafesta: 26/10 á prjóna nr. 3
Uppskriftin berst á rafrænu formi þegar greiðsla hefur verið staðfest.
*ath húfan fylgir ekki með*