Mýrún
Þetta er stóra útgáfan af Bamba og líka svona upplagt að gera eins á eldra systkin. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, slétt berustykki og ermar en munstur á bol.
Stærð: 1, 2, 3, 4, 5 ára
Tillögur að garni: Dala Lerki eða sambærilegt. Ég prófaði einnig að nota Pernilla frá Filcolana. Kom vel út 😊
Magn í gr: 200, 200, 250, 250, 300
Prjónafesta: 22/10 á prjóna nr. 4
Uppskriftin berst á rafrænu formi þegar greiðsla hefur verið staðfest.