Perlur, ungbarnasett
ATH. Þetta er sett sem innheldur uppskrift af Peysu, buxum og húfu.
Ef það á að nota sama lit í allt settið er hægt að taka 1 dokku minna, þar sem það nýtist betur.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka. Listarnir eru prjónaðir jafnóðum, það eru útaukningar með laska. Fallegt munstur eru meðfram listum á framstykki með litlum hnútum sem minna á perlur.
Stærð: 1 mán, 3ja mán, 6 mán, 9 mán 12 mán
Ummál í cm: 48, 51, 55, 56, 58
Tillögur að garni: Kremke merry merino 220 eða KFO merino ( athugið að KFO er með fleiri metra og þarf því minna magn.
Magn í gr: 100, 150, 150, 200, 200
Sætar sokkabuxur/leggings við Perlur peysu, handa litlu dúllunum. Þægilegar og með sokkum neðst handa þessum allra minnstu.
Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður, með fallegu perlunum á hliðinni. Á tveimur minnstu stærðunum eru sokkar sem er þitt val hvort þú gerir eða ekki.
Ég vill benda á að þetta eru sokkabuxur eða leggings þannig að þær eru skrifaðar sem slíkar, ef þú vilt fá þær víðari eins og buxur er hægt að gera næstu stærð fyrir ofan en fylgja lengdarmálum á minni stærð 😊
Stærð: 1mán, 3 mán, 6 mán, 9 mán, 12 mán
Ummál í cm: 40, 42, 45, 48, 53
Tillögur að garni: Kremke merry merino 220 eða KFO merinoull
Magn í gr: 100, 100, 150, 150,150
Hjálmhúfur eru bara það allra besta á litlu börnin, æðislegar í vagninn og kerruna. Snilld að skreyta með dúsk eða dúskum ef það er vilji fyrir því .
Falleg hjálmhúfa sem passar fullkomlega við Perlur peysu og buxur. Húfan er með þessu hefðbundna lagi sem einkennir hjálmhúfur. Sniðið myndast við að auka út og taka saman til skiptis. Dúskar eru ekki nauðsyn en geta vissulega gert skemmtilegt og krúttlegt lúkk
Stærð: 1 mánaða, 3mánaða, 6 til 9 mánaða, 12 til 18 mánaða
Ummál í cm: 34, 37, 39, 42
Tillögur að garni: Kremke merry merino 220, KFO merino
Magn í gr: 1 dokka í allar stærðir
Prjónafesta: 28 til 29 /10 á prjóna nr. 3
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.