Pilsið hennar Amalíu
Fallegt og sparilegt pils á skvísur. Frábært í leikhús ef ferðinni er heitið þangað. Annars er pils bara alltaf flott og mínar ömmustelpur nota pils við allt og öllum stundum, rétt eins og þetta á að vera.
Pilsið er prjónað neðan frá, með nokkrum umferðum af munstri neðst. Kanturinn er prjónaður saman og er með teygju í mittinu.
Frekar auðvelt og frábært verkefni á kaffihúsið eða í bílferðina. Slétti kaflinn er fullkomin í það.
Stærð: 2, 4, 6 og 8 ára
Ummál í cm á streng: 47, 50, 53, 57
Tillögur að garni: Filcolana Merci, bómullarblanda sem er fullkomin í þessa flík. Fæst gleðisprengjunum í https://garnigangi.is/ eða
fingering silver sparkle , handlitað garn frá Dóttir Dyeworks. Garn með glimeri, handa glimmer stelpum. https://dottirdyeworks.com/
Magn í gr: 100, 150, 150, 150 eða tvær hespur af glimmer garni
Prjónafesta: 27/10 á prjóna nr. 3
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .