Sif

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Falleg og klassísk peysa sem hentar bæði fyrir stráka og stelpur, sparileg, fín . Auðveld í vinnslu. Sif er prjónuð ofan frá og niður með útaukningu og munstri í berustykkinu. 

Málin í uppskriftinni eru reiknuð út frá prjónafestu, sem er gefin upp á garninu.

Stærð:                    3 mán, 6 mán, 12 mán, 1, 2, 3, 4 ára    

Ummál í cm:          49, 50, 53, 57, 60, 62, 64

Tillögur að garni:    Dala Lille Lerki, Dala soft merino, Kaos organic soft merino

Magn í gr:              150, 150, 200, 200, 250, 250, 300 plús ein dokka eða afgangur af dokku í munstur.

Prjónafesta:           26/10 á prjóna nr. 3

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar 


Við mælum með