Sigluvík ungbarnapeysa
Falleg peysa á allra nýjustu borgarana.
Peysan er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður með fallegu munstri sem er samansett af sléttum og brugðnum lykkjum. Peysan er hneppt til hliðar og listarnir eru prjónaðir jafnóðum.
Stærð: 1, 3, 6, 9, 12 og 18 mánaða
Ummál í cm: 46, 48, 52, 53, 56, 59
Tillögur að garni: Kelbourne camper, Kremke Merry merino 220 sem fæst hjá www.rendur.is eða annað sambærilegt garn
Magn í gr: 150, 150, 200, 200, 250, 250
Prjónafesta: 28/10 á prjóna nr. 3
Þú þarft að nota hringprjón og sokkaprjóna nr. 2,5 og 3, tölur, prjónamerki og nál til frágangs.
ATH. Húfan á myndinni er Sigluvík ungbarnahúfa og er seld sér.
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .