Skírnarkjóll Ömmu Loppu

  • 1.750 ISK kr
VSK innifalin í verði


Frá því að ég byrjaði að skrifa uppskriftir hefur það verið draumur að hanna minn eiginn skírnarkjól. Eftir að barnabarnið okkar, Elma Rún fæddist ákvað ég að láta drauminn rætast.

Kjóllinn er prjónaður neðan frá og upp, með fallegu gatamunstri. Berustykkið er prjónað ofan frá og niður og flíkin síðan sett saman í mittinu. Pilsið er ekki mjög vítt og auðvitað er hægt að bæði víkka ef fólk vill og eins að hafa sídd eftir hentisemi. Það er hægt að hafa stuttar eða langar ermar ( lýsing fyrir bæði) Hnepptur að aftan og fallegur kragi er í hálmálinu. Ég heklaði takka neðst á pilsið, ermarnar og á kragann.

Mér finnst mikið atriði að velja rétt garn í þessa flík. Flík sem á jafnvel að ganga áfram með börnunum og geta elst vel. Ég hef gert nokkra kjóla úr bómullargarni en finnst þeir frekar þungir og ég vildi það ekki í minn kjól. Ég fann garn hjá Þýska fyrirtækinu Pascuali , garn sem er blanda af fínni merinoull, silki og ramie. Kjóllinn er léttur og með fallegri áferð

Stærð:                    1 mánaða, 3ja mánaða, 6 mánaða

Ummál í cm:          46, 49, 52

Tillögur að garni:    Pascuali pinta , fæst hjá Rendur liturinn heitir natural og er off white

Magn í gr:              400, 450, 500 af uppgefnu garni sem er 212 metrar per 50 gr

Prjónafesta:           27/10 á prjóna nr. 3

Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka

Reikningsupplýsingar : 0123  - 26 - 201091  og Kennitala:  010865 - 3369

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .

 


Við mælum með